Um Sædísi

By Sædís Ýr er merki hannað og saumað af fatahönnuðinum Sædísi Ýri.

Sædís er útskrifaður fatahönnuður úr Listaháskóla Íslands.

Sædís tekur líka að sér sérverkefni fyrir viðburði eins og tónleika, myndbönd, hátíðir, sjónvarp og brúðkaup. Sædís hefur meðal annars gert verkefni fyrir Flott, Bríeti, Reykjavíkurdætur, Ísold og strákana í Æði.

Allar vörur By Sædís Ýr eru hannaðar og saumaðar af Sædísi. Framleiðslan er því lítil og hver einsta flík gerð með hugsun eða pöntun á bakvið hana.

Línur merkisins eru alltaf unnar út frá hugsjón Sædísar um litríka ótamda hamingju.

Inná vefsíðunni er aðeins hægt að panta flíkur sem eru tilbúnar, en hægt er að panta öll snið í þeim litum sem til eru hjá Sædísi hverju sinni. Hægt er að senda tölvupóst á bysaedisyr@gmail.com eða senda Sædísi skilaboð inn á instagramminu By_Saedisyr.